Fékk mér einn japana

Ég var að gerast pabbi eða eitthvað. Háskólinn á Bifröst var að óska eftir mömmum fyrir skiptinemana sem koma í sumar. Ég sagði þeim að ég skildi taka að mér einn japana en ég harðneitaði í nafni réttindabaráttu karla að vera mamma hans, ég skyldi aðeins AÐEINS vera faðir hans.... hún sættist á það og nú sé ég um einn japana í sumar. Það verður gaman að rugla eitthvað í honum, segja honum að kúkur þýði hæ eða eitthvað  hahaha... vá hvað ég er þroskaður :D

 nei nei þetta verður bara gaman enda eru allir hérna með börn nema ég og tími til kominn að maður fái sér einn svona krakka. Ég krefst þess að hann taki upp Kolbeinn sem föðurnafn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband